Category: örsögur – smásögur
-
Tjarnarmars
Mér finnst ég eldast um tíu ár þegar ég horfi framan í þennan hóp af þreyttum andlitum fyrir framan mig. Þreyttum, og áreiðanlega þunnum, einhverjum. Hverjum datt eiginlega í hug að hafa lúðrasveitaræfingu kl. 10 á laugardagsmorgni, og af hverju samþykkti ég það? Formaðurinn, já, það var hans hugmynd. Svo hann kæmist í veiði eða…
-
[örsaga]
Það var bankað. Fyrir utan stóð ekkert nema vetrarmyrkrið og starði inn.Ég fann hvernig köld augu þess horfðu beint inn í sálu mína og sögðu: „Ég veit.“
-
140 stafabil
Í árdaga takmörkuðust Twitter-tístin við 140 stafabil og ég ákvað að spreyta mig á prósa- eða örsagnagerð sem félli innan þess ramma. Afraksturinn (tekinn af Twitter) er hér fyrir neðan og mögulega bætist meira við ef ég tek þetta upp aftur. Áður fluttu þeir eingöngu um áramót, en nú sjást árstíðabundin sumarhús álfa á engjum…
-
Saga úr pappírsríki
Fyrirvari: Þessi smásaga hefur ekkert með húsnæði að gera. Eitt sinn var kona sem bjó í leiguíbúð, sem hún leigði af hinu opinbera. Morgun einn varð hún vör við misfellur í málningunni í loftinu, en hugsaði með sér að hún myndi kíkja á þetta á næstu dögum. Nógu öðru var að sinna, og daglegt líf…
-
Heima er best
Þegar ég sit við gluggann minn og horfi út á haf og eyjar, þá hvarflar hugurinn gjarnan að þessu duglega fólki sem fer af heimili sínu, oft í hverri viku, til að sækja vinnu. Sjálfum þætti mér best að vinna bara heima við ef ég nennti svoleiðis dútli. Ekki það að ég sé einhver iðjuleysingi;…
-
„Blast from the past“
Þetta fjandans óveður var búið að geysa megnið af deginum og átti víst gera það langt fram á kvöld, með ruslatunnur á flækingi og áramótaruslið fjúkandi um allar götur á meðan rigningin lamdi glugga og veggi. Svo það var ekkert að gera annað en að halda sig heima og reyna að koma einhverju því í…
