Ég heiti Gréta Hauksdóttir og er með háskólagráður í verkefnastjórnun, bókmenntafræði, ritlist og ritstjórn (sjá nánar í ferilskrá). Ég lærði myndlist við Myndlistaskóla Reykjavíkur og grafíska hönnun við LHÍ, spila í lúðrasveitum, hef áhuga á mannkynssögu, myndasögum og myndlýsingum, handverki, íslenskri náttúru og mörgu öðru.
Í fjölmörg ár hef ég „skrifað fyrir skúffuna“, og ég bloggaði um áraraðir hér og þar á svæðum sem horfin eru í gleymskunnar dá og svarthol alnetsins. Þessari vefsíðu var/er ætlað að birta hluta af því efni sem varð til á meðan ég var í ritlistarnámi, sem og ýmis örskrif sem mig langar að koma frá mér.
Síðan á 2. áratug þessarar aldar hef ég haldið úti nokkrum áhugasviðsvefjum, hverra hlutverk var í upphafi að halda utan um ýmsar upplýsingar svo ég gæti sjálf auðveldlega flett þeim upp síðar, en líka fyrir aðra áhugasama.
Síðan Lukku-Láki og félagar varð til þegar ég fór að velta fyrir mér Daltón-bræðrum, sögu þeirra og aldursröð í bókunum. Við þá rannsóknarvinnu rakst ég á fleiri upplýsingar sem ég vildi líka halda til haga, og einhvers staðar þurfti ég að vista þær. Svo bættust við upplýsingar og samantekt um Viggó viðutan, Sval og Val. Vefsvæðið hefur að miklu leyti legið í dvala síðasta áratuginn, en hver veit nema ég taki mig til og bæti við þegar tími gefst til.
Á vefsvæðinu Fornsöguleg dýr er óformlegt samansafn upplýsinga um risaeðlur og önnur dýr miðlífsaldar, sem og dýr sem þróuðust fyrir og eftir tíma risaeðlanna. Upprunalegur tilgangur samansafnsins var að halda utan um þekkingu og upplýsingar sem ég þurfti reglulega að rifja upp á þeim tíma sem sonur minn var gangandi alfræðirit um risaeðlur, svo ég væri viðræðuhæf og skoðanir mínar rökstuddar (og þar með gjaldgengar).
Nýjasta vefsvæðið er Uglulækjarbrú sem var hluti undirbúnings og rannsóknarvinnu fyrir lokaritgerð mína í MA-náminu Bókmenntir, menning og miðlun þar sem ég velti fyrir mér hvort hægt væri að þýða smásögur Ambrose Bierce sem gerast í Borgarastríði Bandaríkjanna 1861-1865 (sem oft var kallað Þrælastríðið á íslensku) milli tungumála, alda og menningarheima svo vel færi. Rannsóknarvinnan sem ég byggði hluta ritgerðarinnar á fólst í þýðingu þriggja smásagna úr safninu In the Midst of Life – Tales of Soldiers and Civilians og uppsetningu þessa vefsvæðis sem hýsir viðbótarupplýsingar um tiltekna bardaga stríðsins, sögurnar og það þjóðfélag sem mótaði borgarastríðið og eftirmála þess.
Ef áhugi er fyrir hendi má senda mér línu á netfangið illfygli [hjá] gmail.com.
