Gréta Hauksdóttir (1976 – )
Menntun
2025: MA í bókmenntum, menningu og miðlun (Literature, Culture and Media). Kjörsvið: enska.
2023: MPM – meistaranám í verkefnastjórnun. Háskólinn í Reykjavík.
2018: MA í hagnýtri ritstjórn og útgáfu. Háskóli Íslands.
2017: BA í ensku og ritlist. Háskóli Íslands.
2004: BA í grafískri hönnun. Listaháskóli Íslands.
Störf og starfsreynsla
2023 – 2026
Deildarfulltrúi (department co-ordinator) innan Listaháskóla Íslands. Fyrst í afleysingum í listkennsludeild og svo í tónlistardeild frá janúar 2024 til febrúar 2026.
2018 – 2023
Sérfræðingur í aðlögun lesefnis, og samskipta- og kynningafulltrúi frá ágúst 2021 til október 2022, hjá Sjónstöðinni – þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Apríl – júní 2018
11 vikna starfsnám hjá Vísindavef Háskóla Íslands.
Úrvinnsla og flokkun innsendra spurninga; innsetning á vef eftir yfirlestur og aðlögun svara frá sérfræðingum. Svo skrifaði ég sjálf nokkur svör við spurningum sem bárust.
Sumarstörf 2016, 2017, og frá júlí 2018 og út október sama ár)
Afleysingastörf í móttöku Embættis landlæknis.
Þjónustu- og úrlausnamiðað starf sem krefst mikilla samskipta við almenning sem og starfsmenn embættisins, auk sérhæfðra og almennra skrifstofustarfa.
2008 – 2013
Vefumsjón, umbrot / verkefnisstjóri, stoð- og rekstrarsviði.
Lýðheilsustöð, og síðar Embætti landlæknis
Umbrot ýmiskonar prent- og kynningarefnis, uppsetning og aðgengi eyðublaða; m.a. með tilliti til skjálesara. Myndvinnsla, viðhald vefsvæðis og tölvutengd þjónusta við samstarfsfólk.
2006 – 2008
Verkefnisstjóri
Exit.is – Stúdentaferðir
Umsjón starfsþjálfunarprógramms í Evrópu fyrir ungt fólk. Mikil samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila sem og viðskiptavini, aðstoð og ráðleggingar við ferðaskipulag, upplýsingaöflun fyrir viðskiptavini, textagerð, bókanir í erlenda mála- og sérskóla, bókanir í flug og ýmislegt fleira.
Aðkoma að markaðs- og kynningarmálum:
- Endurskoðun og viðhald vefsvæðis Sjónstöðvarinnar 2022-2023, áður en stofnunin tók upp samræmda framsetningu ríkisstofnana á Ísland.is. Uppsetning ýmis konar fræðsluefnis Sjónstöðvarinnar til heimaprents.
- Ritstýring og umsjón Vors siðar 2019, ársrits Ásatrúarfélagsins. Umbrot og uppsetning ritsins árin 2016 og 2017, sem og dagatals (með myndgrafík) bæði árin.
- Markaðssetning á Facebook og í raunheimum á safnritinu Hljóð bók, samstarfsverkefni ritlistarnema og ritstjórnarnema við HÍ vorið 2018.
- Undirbúningur og skipulag nemendaráðstefnu við HÍ, samstarfsverkefni meistaranema, í apríl 2018.
Önnur starfsreynsla, dæmi:
- Hjúkrunar- og móttökuritari á ýmsum deildum Landspítala- Háskólasjúkrahúss við Hringbraut, bæði í fullu starfi og sumarafleysingum.
- Aðstoðarmaður iðjuþjálfa á geðdeildum Landspítala að Kleppi og Hringbraut.
- Bókhaldsstörf hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar.
- Leiðbeinandi í listgreinum við Höfðaskóla á Skagaströnd
- Stuðningsfulltrúi í Flataskóla, Garðabæ.
- Starfsmaður á sambýli þroskaheftra; Ægisgrund í Garðabæ og Skálatúnsheimilinu í Mosfellsbæ.
Tungumálakunnátta
- Íslenska : móðurmál
- Enska : mjög góð
- Sænska : góð (les mjög vel, tala og skrifa nokkuð vel)
- Danska : góð (les mjög vel, tal- og skrifmál þarfnast upprifjunar)
- Þýska: slarkfær, þarfnast upprifjunar
- Franska: þarfnast upprifjunar.
Dvöl erlendis:
- Kaupmannahöfn, Danmörku: Sept. 2013 – júlí 2014.
- Aþena, Grikklandi: Febrúar – júlí 2003. Erasmus skiptinemi.
- Tyresö, Svíþjóð: Ágúst 1998 – maí 1999. Au-Pair.
Félagsstörf og áhugamál:
- Meðlimur í Lúðrasveit Hafnarfjarðar síðan 1995, varamaður í stjórn nokkrum sinnum.
- Meðlimur í Brassbandi Reykjavíkur frá 2014.
- Smásagnaskrif, teikningar, bókalestur, mannkynssaga, teiknimyndasögur, borgarhjólreiðar, borgargöngur, handavinna.

