Author: Gréta

  • Sófakartöflur

    Undir þungu fargi egendilöng í sófa ligg.Kattarsmánin kúrir segklofvega minn yfir hrygg. 

  • Tjarnarmars

    Mér finnst ég eldast um tíu ár þegar ég horfi framan í þennan hóp af þreyttum andlitum fyrir framan mig. Þreyttum, og áreiðanlega þunnum, einhverjum. Hverjum datt eiginlega í hug að hafa lúðrasveitaræfingu kl. 10 á laugardagsmorgni, og af hverju samþykkti ég það? Formaðurinn, já, það var hans hugmynd. Svo hann kæmist í veiði eða…

  • [örsaga]

    Það var bankað. Fyrir utan stóð ekkert nema vetrarmyrkrið og starði inn.Ég fann hvernig köld augu þess horfðu beint inn í sálu mína og sögðu: „Ég veit.“

  • Skammdegisþykkja

    Himininn svarturmót skíthvítum sköflunum.– Ólitir þrettándans.

  • 140 stafabil

    Í árdaga takmörkuðust Twitter-tístin við 140 stafabil og ég ákvað að spreyta mig á prósa- eða örsagnagerð sem félli innan þess ramma. Afraksturinn (tekinn af Twitter) er hér fyrir neðan og mögulega bætist meira við ef ég tek þetta upp aftur. Áður fluttu þeir eingöngu um áramót, en nú sjást árstíðabundin sumarhús álfa á engjum…

  • Saga úr pappírsríki

    Fyrirvari: Þessi smásaga hefur ekkert með húsnæði að gera. Eitt sinn var kona sem bjó í leiguíbúð, sem hún leigði af hinu opinbera.  Morgun einn varð hún vör við misfellur í málningunni í loftinu, en hugsaði með sér að hún myndi kíkja á þetta á næstu dögum. Nógu öðru var að sinna, og daglegt líf…

  • Hæka (október)

    Fyrsta dag vetrarrunnu græntóna slæðurum himinhvolfið.

  • Horft í sólsetrið

    Í kvöldsólinniliggur dauður maðurá stígnum. Skýið sem áður var einhyrningurer nú flóðhestur. Himinn og haferu á litinneins og mynd eftir Tolla Og þarinnsendir lyktartauma upp í loftið. Júlí 2019

  • Ort í mynd

    (án nokkurrar gagnrýni á Louisu Matthíasdóttur, sem málaði frummyndina/ fyrirmyndina). Mynd Louisu fengin héðan og birt undir „Fair Use“- leyfi.

  • Heima er best

    Þegar ég sit við gluggann minn og horfi út á haf og eyjar, þá hvarflar hugurinn gjarnan að þessu duglega fólki sem fer af heimili sínu, oft í hverri viku, til að sækja vinnu. Sjálfum þætti mér best að vinna bara heima við ef ég nennti svoleiðis dútli. Ekki það að ég sé einhver iðjuleysingi;…