(Þeir sækja að eins og mývargurinn…)
Nei, brast ekki fjárans strengurinn?!
Gerða mín, skverið þið mamma nú í einn nýjan!
Á nóinu, helst!
− Já, var það ekki?
Manstu nú löðrunginn þarna um árið?
Hefðir betur sleppt honum! (djók)
− Ja, líklega er þá útséð um þetta.
Erum við þá kvitt?
Sáttarhönd, svona for old time‘s sake?
(æ, er þetta ekki pínu rómó?)
− Grípurðu ekki bara atgeir og öxi,
þú sómi Íslands, sverð og skjöldur?
(hvað getur maður annað sagt?)
− Jú, hafa skal það sem hendi er næst;
ég lúffa ekki fyrir svona lýð!
Gerða, ég fer út og tek þetta þar!
(ætli Sjeikspír skrifi um þetta?)

Leave a Reply